Róbert Ragnarsson

Róbert Ragnarsson er frambjóðandi í prófkjöri Viðreisnar í Reykjavík

Kominn er tími til raunverulegra breytinga. Það er eitt að tala um breytingar, annað að kunna og best er að hafa raunverulega gert.

Um Róbert

Ég er með meistarapróf í stjórnsýslu með rekstur sveitarfélaga sem sérsvið. Ég hef verið bæjarstjóri, stofnað og rekið eigið fyrirtæki og verið meðeigandi í stærsta ráðgjafarfyrirtæki landsins KPMG. Ég hef unnið með fólki úr öllum flokkum við að straumlínulaga rekstur, bæta þjónustu og efla samfélög. Meðal annars fyrir Reykjavíkurborg. Ég hef skýra sýn á hvernig við getum gert betur, og ég er tilbúinn að taka ábyrgð á því að hrinda henni í framkvæmd.

Reynsla mín af því að leiða fólk saman og finna sameiginlegar lausnir mun bæta rekstur borgarinnar og skila peningum í þjónustuna sem við viljum fá.

Róbert Ragnarsson - Frambjóðandi til borgarstjórnar Reykjavíkur

Stefnuyfirlýsing

Ég býð mig fram því að ég vil sjá betur rekna borg sem bætir þjónustu við íbúa og eflir bæði nærsamfélag og lífsgæði.

Alltof oft stranda góðar hugmyndir og komast ekki til framkvæmda. Flöskuhálsarnir eru víða og ábyrgðarskil óljós. Óþreyja mín fyrir því hefur vaxið og nú vil ég stíga inn á pólitíska sviðið, taka ábyrgð, ná góðum árangri og auka traust til borgarstjórnar. Ég hef gert þetta áður og vil leiða breytingar í Reykjavík.

Ég sé fyrir mér borg með skilvirkum rekstri og fjárfestingu í innviðum í öllum hverfum. Borg þar sem foreldrar hafa val um dagvistun og börn komast að í kjölfar fæðingarorlofs. Borg þar sem umferð gengur greitt og borgarbúar velja að ganga, hjóla, taka strætó eða keyra. Borg þar sem borgarbúar hafa val um fjölbreytta búsetu. Borg þar sem atvinnulífið fær frið til að skapa störf og verðmæti fyrir samfélagið.

Borgarbúar eiga að hafa frelsi til að velja lausnir. Þannig náum við árangri hraðar og aukinni ánægju með þjónustu. Með samvinnu og skýra sýn getum við gert Reykjavík að enn betri stað til að búa, vinna og vaxa.

Ábyrgur rekstur

Brýnt er að bæta rekstur borgarinnar og skila þeim ávinningi í þjónustu við borgarbúa og fjárfestingar í innviðum.

Frelsi til að velja dagvistun fyrir börn

Borgarbúar eiga að hafa val um borgarrekna leikskóla, einkarekna leikskóla, fyrirtækjarekna dagvistun og dagforeldra. Fjölbreytni og valkostir leysa biðlistana hraðar.

Frelsi til að velja búsetu

Það þarf að svara kröfum íbúa og markaðarins um íbúðir fyrir ungt fólk, og fleiri sérbýli.

Verum ekki föst í umferð næsta áratuginn

Höfuðborgarsvæðið hefur verið fjársvelt í samgönguframkvæmdum alltof lengi. Við þurfum fjölbreytta valkosti fyrir borgarbúa. Borgarlína og framkvæmdir fyrir bílaumferð, eins og Sundabraut, stokkar á Sæbraut og Miklubraut, og mislæg gatnamót við Sæbraut. Þetta er ekki annaðhvort- eða, heldur bæði- og.

Greinar

Það er hægt að snúa við verri stöðu en er í Reykjavík í dag

Það er hægt að ná árangri í fjármálum borgarinnar, bæta þjónustuna og lækka skatta. Ég veit það, því ég hef leitt hóp sem hefur gert það.

Lesa meira →

30 milljarðar í út­svar en engin rödd í kosningum

Ef við ætlum að ná árangri í inngildingu í verki, ekki bara í orði, er ljóst að eitt áhrifamesta skrefið væri að veita öllum erlendum íbúum kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum á sömu forsendum og norrænum ríkisborgurum. Með því myndi þátttaka aukast, tengsl milli íbúahópa styrkjast og skapast skýr hvati fyrir stjórnmálafólk til að setja málefni þessa stóra og mikilvæga hóps í forgang.

Lesa meira →

Börnin í Laugardal eiga betra skilið

Þéttingarreitir við Kirkjusand, í Vogabyggð og á Orkureitnum skilað borginni miklum tekjum af byggingarrétti, gatnagerðargjöldum, lóðarleigu og skatttekjum nýrra íbúa. Þetta eru peningar sem eiga að skila sér aftur í hverfið.

Lesa meira →

Þúsund klifurbörn í frjálsu falli

Sem leiðtogi Viðreisnar í Reykjavík mun ég beita mér fyrir því að aðstaða fyrir klifur og aðrar sambærilegar greinar verði bætt. Það er í anda Viðreisnar að tryggja valfrelsi. Að börn og ungmenni hafi raunverulega möguleika til að velja sér íþróttir og frístundir sem henta þeim.

Lesa meira →

Börnin geta ekki beðið lengur. Hættum að ræða og byrjum að framkvæma.

Það er einfaldlega óásættanlegt að ár eftir ár ræðum við sama úrræðaleysið í skólakerfinu án þess að gripið sé til raunverulegra aðgerða. Börnin geta ekki beðið lengur.

Lesa meira →

Þrjú slys á sama stað en svarið er: Það er allt í lagi hér!

Það þarf ekki að breyta því sem virkar, en hins vegar verður að bregðast við þar sem pottur er brotinn!

Lesa meira →

23 borgarfulltrúar á fullum launum í Reykjavík, en 7 í Kaupmannahöfn

Sem leiðtogi Viðreisnar í borgarstjórn mun ég nýta þekkingu mína og reynslu til að einfalda kerfið, bæta ákvarðanatöku og endurvekja traust. Ég hef mikla reynslu sem bæjarstjóri og ráðgjafi í opinberri stjórnsýslu, en líka úr atvinnulífinu og hef menntun í góðum stjórnarháttum.

Lesa meira →

Fyrirsjáanleiki í frístundastarfi

Sem leiðtogi Viðreisnar í Reykjavík vil ég tryggja að foreldrar geti treyst á frístundaþjónustu og að starfsfólk hafi raunveruleg tækifæri til að byggja upp framtíð í frístundastarfi borgarinnar.

Lesa meira →

Verum ekki föst í umferð næsta áratuginn

Ég er oft spurður hvort ég sé með eða móti Borgarlínu. Hvort ég sé með eða á móti einkabílnum. Svarið er einfalt. Bæði er betra. Skautun er ekki pólitík Viðreisnar. Hún leysir engan vanda.

Lesa meira →

Hafa samband

Hefur þú spurningar eđa vilt styđja herferđina? Hafa samband!